Einar Karl Ingvarsson hefur yfirgefið herbúðir Vals þar sem samningur hans var á enda og samið við Stjörnuna. Einar ólst upp í FH.
„Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að við höfum náð samkomulagi við Einar Karl Ingvarsson um að leika með liðinu næstu þrjú árin,“ segir á heimasíðu Stjörnunnar.
Ólafur Jóhannesson annar af þjálfurum Stjörnunar þekkir það vel að vinna með Einari eftir samstarf þeirra á Hlíðarenda.
„Einar Karl er miðjumaður sem hefur leikið með Val síðan 2015 þar sem hann lék 107 leiki fyrir félagið. Einar er fjölhæfur og útsjónarsamur leikmaður sem við vitum að mun gera frábæra hluti í Garðabænum. Knattspyrnudeild bindur miklar vonir við Einar sem hefur mikinn metnað sjálfur og hlökkum við mikið til þess að fylgjast með honum í bláu treyjunni!,“ segir á vef Stjörnunnar.