„Þarna er ég í miklu rugli og kominn í mjög slæman félagsskap. Ég á að fara þarna út og það klúðrast svakalega,“ segir Sigurður í samtali við Hafliða Breiðfjörð, ritstjóra Fotbolti.net, í þættinum. Sigurður segir frá frelsissviptingunni en hann var frelsissviptur í 36 tíma. „Ég hef aldrei verið jafnhræddur á ævinni um líf mitt og hélt ég myndi deyja þarna.“
„Svo er ég neyddur til að fara að ræna apótek. Ég var ekkert eðlilega ánægður þegar þeir settu mig í það því þá vissi ég að ég myndi ná að losna. Þetta endar á því að ég fæ byssu og á að ræna apótekið en ég var ekki að fara að gera það,“ segir Sigurður.
„Það er ekkert sjálfsagt að gera það ekki því undir svona kringumstæðum verður maður rosalega hræddur og stjórnar engu. Ég náði að sleppa því og annars þá værum við ekki að tala saman hér,“ segir Sigurður, hann lagði skotvopnið á borðið þegar hann gekk inn í apótekið. Þremur dögum eftir að hann var handtekinn var Sigurði sleppt.
Lesa meira: Íslendingur frelsissviptur í Amsterdam: Píndur í apótek vopnaður byssu