Mason Greenwood sóknarmaður Manchester United fékk frí frá æfingum í síðustu viku til jafna sig eftir áfall. Vinur hans svipti sig lífi á dögunum aðeins 17 ára gamall.
Ole Gunnar Solskjær stjóri Manchester United ætlar að passa upp á að Greenwood komi sér hægt og rólega af stað eftir erfiða tíma. Hann hefur fengið slæma útreið í fjölmiðlum eftir að hafa verið rekinn úr enska landsliðinu í Reykjavík, eftir brot á sóttvarnarreglum.
Mason hefur upplifað erfiða tíma eftir að Jeremy Wisten vinur hans svipti sig lífi, hann hafði verið í herbúðum Manchester City. „Það er eðlilegt að líða ekki vel og þegar þér líður ekki vel þá æfir þú ekki. Hann fékk að fara aðeins í burtu, hann fékk 9 daga frí frá æfingum. Við erum að byggja hann upp aftur, ég hef engar áhyggjur af honum,“ sagði Ole Gunnar Solskjær um málið.
Greenwood var rekinn úr enska landsliðinu eftir að hafa eytt nótt með Nadíu Sif Gunnarsdóttir á Hótel Sögu í september, síðan þá hafa enskir fjölmiðlar verið á bakinu á honum.
„Ég hef ekki rætt þetta lengi, ég vil bara segja að allur þessi skítur sem hann fær í fjölmiðlum er ekki í lagi,“ skrifar Nadía í svari við spurningu á Instagram.
„Hann er bara 19 ára, það er ekki auðvelt að verða svona frægur og eignast miljónir stuðningsmanna á stuttum tíma. Enginn stórstjarna hefur höndlað þetta auðveldlega. Látið hann í friði og hann kemur sterkari til baka.“
Nadía hafði í haust tjáð sig um nóttina með Greenwood við enska götublaðið The Sun ,,Mason kyssti mig og það varð hiti hjá okkur,“ sagði Nadía Sif önnur af íslensku stúlkunum sem fór á hótel enska landsliðsins í einkaviðtali við The Sun sem birtist skömmu eftir atvikið.
„Það gerðust hlutir, en ég ætla ekki að ræða smáatriði. Hann var í góðu formi, ég kunni að meta það að hann væri hærri í loftinu en ég.“