Jón Daði Böðvarsson kom inn á á 75. mínútu þegar lið hans Millwall tók á móti Cardiff í næst efstu deild á Englandi.
Leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Millwall komst yfir með marki frá Matt Smith á 35. mínútu. Kieffer Moore jafnaði metin fyrir Cardiff á 80. mínútu.
Millwall situr í níunda sæti deildarinnar með 18 stig. Cardiff er í 15. sæti með 14 stig.
Millwall 1 – 1 Cardiff
1-0 Matt Smith (35′)
1-1 Kieffer Moore (80′)