fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Sjáðu listann: Dýrustu leikmennirnir sem missa af EM

Sóley Guðmundsdóttir
Föstudaginn 20. nóvember 2020 21:30

Martin Odegaard og Erling Braut Haaland Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Evrópumótið í knattspyrnu fer fram næsta sumar. Fjöldinn allur af stórstjörnum verða á svæðinu. Það er þó ekki pláss fyrir alla. The Sun tók saman lista af tíu dýrustu leikmönnunum sem komust ekki á EM.

Skjáskot/The Sun
  1. Jan Oblak – Slóvenía – 80 milljónir punda/14,5 milljarðar króna

Jan Oblak er markmaður í stórliði Atletico Madrid. Slóvenía hefur ekki komist á stórmót síðan Oblak byrjaði að spila með landsliðinu

Getty Images

2. Erling Haaland – Noregur – 71,5 milljón pund/13 milljarðar króna

Haaland er leikmaður Borussia Dortmund. Hann hefur spilað sjö leiki með norska landsliðinu og skoraði í þeim sex mörk. Noregur komst síðast á EM árið 2000.

Getty Images

3. Sergej Milinkovic-Savic – Serbía – 58 milljónir punda/10,5 milljarðar króna

Sergej er miðjumaður hjá Lazio. Draumur hans um að spila á EM á næsta ári varð að engu í tapi gegn Skotlandi. Sergej hefur spilað 20 leiki fyrir Serbíu og skoraði í þeim þrjú mörk.

Getty Images

4. Miralem Pjanic – Bosnía – 45 milljónir punda/8 milljarðar króna

Pjanic er reynslumikill leikmaður hann hefur spilað 98 landsleiki fyrir Bosníu og skorað 15 mörk. Hann gekk til liðs við Barcelona í sumar og hefur komið við sögu í fjórum leikjum.

Getty Images

5. Martin Ødegaard – Noregur – 40 milljón pund/7 milljarðar króna

Hinn 21 árs gamli Ødegaard spilar með Real Madrid. Hann hefur spilað 25 leiki fyrir norska landsliðið þrátt fyrir ungan aldur. Hann mun fylgjast með EM úr sófanum líkt og landi hans Erling Haaland.

Getty Images

6.-7. Filip Kostic – Serbía – 28 milljónir punda/5 milljarðar króna

Filip Kostic er 28 ára leikmaður Eintracht Frankfurt. Hann hefur spilað 35 leiki með Serbíu. 

Getty Images

6.-7. Kostas Manolas – Grikkland – 28 milljónir punda/5 milljarðar króna

Manola er 29 ára leikmaður Napoli. Hann hefur spilað 42 landsleiki og skorað eitt mark. Grikkland komst síðast á EM árið 2012 og enduðu í sjöunda sæti.

Getty Images

8. Nikola Milenkovic – Serbía – 25 milljónir punda/4.5 milljarðar króna

Hinn 23 ára gamli Serbi leikur með Fiorentina á Ítalíu. Hann hefur spilað 26 leiki með Serbíu. Hann spilaði með Serbíu á HM 2018.

Getty Images

9.-10. Marash Kumbulla – Albanía – 22 milljónir punda/4 milljarðar króna

Kumbulla er tvítugur leikmaður. Hann hefur spilað þrjá leiki fyrir albanska landsliðið. Albanía spilaði á EM 2016 en Kumbulla var ekki í hópnum.

Getty Images

9.-10. – Luka Jovic – Serbía – 22 milljónir punda/4 milljarðar króna

Luka Jovic er fjórði leikmaður Serbíu á listanum. Þessi 22 ára gamli leikmaður spilar með Real Madrid. Hann hefur spilað 11 landsleiki og skorað í þeim fimm mörk.

Getty Images
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

KSÍ segir samtalið um Laugardalsvöll jákvætt

KSÍ segir samtalið um Laugardalsvöll jákvætt
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Leggur til að United ráði Roy Keane til starfa í sumar

Leggur til að United ráði Roy Keane til starfa í sumar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Beitir Ólafsson úr KR í HK

Beitir Ólafsson úr KR í HK
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir magnaðan sigur Arsenal – Óvænt tíðindi

Ofurtölvan stokkar spilin eftir magnaðan sigur Arsenal – Óvænt tíðindi
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Toddi fundaði með Infantino í París – Þessi mál voru á dagskrá

Toddi fundaði með Infantino í París – Þessi mál voru á dagskrá
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Eiginkonan umdeilda tjáði sig í gærkvöldi – Hefur áður kallað eftir brottrekstri

Eiginkonan umdeilda tjáði sig í gærkvöldi – Hefur áður kallað eftir brottrekstri
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Svona er tölfræðin hjá Slot sem er sagður taka við Liverpool í sumar

Svona er tölfræðin hjá Slot sem er sagður taka við Liverpool í sumar
433Sport
Í gær

Búist við að fjöldinn allur komi saman úr skápnum í næsta mánuði

Búist við að fjöldinn allur komi saman úr skápnum í næsta mánuði