Erik Hamren kveður íslenska landsliðið í kvöld þegar England og Ísland mætast í lokaumferð Þjóðadeildar UEFA í kvöld. Leikurinn fer fram á Wembley-leikvanginum í Lundúnum, hefst kl. 19:45 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 sport.
Íslenska liðið er sem kunnugt er þegar fallið í B-deild Þjóðadeildarinnar og enska liðið á ekki möguleika á að komast í úrslitakeppnina. Belgar og Danir mætast á sama tíma og er það úrslitaleikur um efsta sæti riðilsins.
Hamren ákvað að stíga til hliðar þegar ljóst var að Ísland kæmist ekki á Evrópumótið, súrt tap geng Ungverjum á fimmtudag tók drauminn frá þjóðinni. „Ég varð bara reiður, Það er eins og það er,“ sagði Guðmundur Benediktsson á Bylgjunni í dag þegar hann fór yfir síðustu daga með landsliðinu og vonbrigðin yfir því að komast ekki á EM.
Sonur hans, Albert Guðmundsson var nálægt því að tryggja íslenska liðinu sigur en rétt missti af boltanum í stöðunni 0-1 fyrir Íslandi. Ungverjar fóru í sókn og jöfnuðu. „Ég skammaði hann ekki. Markvörðurinn snerti boltann örlítið og það skemmdi það,“ sagði Gummi Ben.
Sögur hafa verið á kreiki um að nokkrir leikmenn landsliðsins muni hætta með liðinu, Kári Árnason er ekki einn af þeim þó hann telji sig ekki fá fleiri tækifæri þá er hann klár ef nýr þjálfari vill nota hana. „Kári myndi aldrei hafna kallinu eins og hann sagði það. Það eru einhverjir sem eru að hætta í kvöld, held ég. Án þess að ég geti sagt neitt til um það, ég veit bara að það er einhver.“
Fimm leikmenn úr U21 árs landsliðinu verða í hópnum í kvöld og gætu Ísak Bergmann Jóhannesson og Sveinn Aron Guðjohnsen meðal annars spilað sína fyrstu A-landsleiki.
„Ég held að þú munir sjá stráka sem munu þreyta frumraun sína, ég yrði hissa ef þú myndir ekki sjá nokkra af þeim í kvöld. Ég held að flest augu beinist að Ísaki Bergmann. Hann er 17 ára og er að spila lykilhlutverk í sænsku deildinni, besti leikmaður Norköpping. Margir spenntir fyrir því að sjá hann, hann er bara 17 ára. Ekki búast við því að hann klári þennan leik, ég er á því að við hefðum átt að sjá þessa leikmenn fyrr í leikmannahóp. Bara að komist inn í þennan kúltúr, læra hefðir og siðir í landsliðinu. Við erum búnir að vera mikið í Þjóðadeildinni, leikmenn um þrítugt sem sitja á bekknum allan tímann. Þá er betra að hafa 17-18-19 ára á bekknum að venjast.“