Jóhann Már Helgason fyrrum framkvæmdarstjóri Vals telur að hver leikmaður Ísland hafi misst af um 18 milljónum króna þegar Ísland missti af sæti á Evrópumótið á næsta ári. Í húfi var 1,5 milljarður fyrir knattspyrnusambandið sem UEFA hefði greitt fyrir að komast inn á mótið. Þeir 23 leikmenn sem hefðu verið valdir í lokahóp Íslands á EM hefðu fengið væna greiðslu.
Þessi fjárhæð hefði komið inn til sambandsins og farið til aðildarfélaga, leikmanna og í kostnað við mótið. Þá hefði KSÍ átt afgang til að setja í sjóð sína og eiga til framtíðar.
Ísland var yfir stærstan hluta leiksins eða allt þar til á 88 mínútu leiksins þegar Ungverjar jöfnuðu og þeir skoruðu svo sigurmarkið fimm mínútum síðar og draumur Íslendinga á enda.
Erik Hamren mun láta af störfum eftir leikinn gegn Englandi á morgun en óvíst er hver tekur. Jóhann Már telur að það kosti um 40 milljónir á ári að ráða inn erlendan þjálfara.
„Hvað kostar að ráða landsliðsþjálfarana? Aðstoðarþjálfarar hafa verið í stóru hlutverki, ef þú ræður erlendan þjálfara þá þarftu klókan íslenskan aðstoðarmann og leitt þá í gegnum fyrstu mánuðina. Þetta er pakki, sem báðir þessir kosta. Erlendur landsliðsþjálfara, við erum að tala um 40 milljónir á ári. Sem eru til í að koma fyrir minni pening en þeir geta fengið annars staðar, það er hægt að gera vel við þessa aðila. Bónusar til að komast inn á stórmót, KSÍ hefur ekki efni á að borga 10-15 milljónir á mánuði eins og gengur og gerist í stórum löndum,“ sagði Jóhann Már í Dr. Football.
Þegar Ísland komst á Evrópumótið 2016 var talað um að leikmenn hafi fengið um 20 milljónir í bónus fyrir að komast inn á mótið og góðan árangur þar. Þá fékk KSÍ 1,9 milljarð í tekjur. „Ég held að þessi EM peningar, ég held að þetta séu 16-18 milljónir á leikmann. Ég held að það sé nærri lagi,“ sagði Jóhann í þættinum.