Sergio Ramos spilaði sinn 177. landsleik fyrir spænka landsliðið í leik í Þóðadeildinni í gær. Hann er þar með orðinn leikjahæsti landsliðsmaður Evrópu.
Spánn spilaði gegn Sviss og lauk leiknum með 1-1 jafntefli. Ramos hefur átt betri leik en í gær. Hann misnotaði tvær vítaspyrnur í leiknum. Fram að þessum leik hefur hann skorað úr síðustu 25 vítaspyrnum með spænska landsliðinu og Real Madrid.
Gianluigi Buffon, fyrrverandi markmaður ítalska landsliðsins og núverandi leikmaður Juventus, átti metið á undan Ramos. Hann spilaði síðast landsleik árið 2018.
Sergio Ramos hefur unnið fjölda titla á ferlinum. Hann varð heimsmeistari með Spáni árið 2010 og Evrópumeistari árið 2008 og 2012.
Með Real Madrid hefur Ramos fjórum sinnum sigrað Meistaradeild Evrópu og fimm sinnum orðið Spánarmeistari.