Sóttvarnarlæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafa sent tilmæli til íþróttahreyfingarinnar á höfuðborgarsvæðinu. Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu eru þar beðin um að gera hlé á æfingum og keppni í öllum íþróttum frá deginum í dag til 19. október. Jafnframt eru þau beðin um að fresta keppnisferðum út á land. Í fréttatilkynningu sóttvarnarlæknis og ríkislögreglustjóra er komið inn á fleiri atriði sem tilmæli eru um hér á höfuðborgarsvæðinu.
Framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkti á fundi sínum 8. október að beina því til íþróttahreyfingarinnar á höfuðborgarsvæðinu að fara að tilmælum sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Framkvæmdastjórn ÍSÍ beinir því einnig til íþróttahreyfingarinnar í heild að taka tillit til þeirra aðstæðna sem skapast hafa á höfuðborgarsvæðinu og þeirra aðgerða sem sérsambönd ÍSÍ hafa þurft að grípa til í kjölfarið. Jafnframt er bent á að tilmæli um ferðalög til eða frá höfuðborgarsvæðinu ná einnig til iðkenda og annarra þátttakenda í íþróttastarfinu.
Hjá Víkingi Reykjavík hafa komið upp smit hjá yngri iðkendum félagsins. Tveir leikmenn 2 flokks eru smitaðir og þá er smit í 4 flokki karla. Töluverður fjöldi er í sóttkví vegna þess.
Börn sem hingað til hafa mátt stunda sínar íþróttir falla undir þessu nýju tilmæli en hér á aðeins við höfuðborgarsvæðið.