fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433Sport

Fjórir efstu Íslendingarnir allir farnir úr landi

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 5. október 2020 15:00

Fréttablaðið/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrír markahæstu leikmenn efstu deildar karla í knattspyrnu á Íslandi eru erlendir ríkisborgarar. Steven Lennon framherji FH hefur skorað 17 mörk og leiðir kapphlaupið um gullskóinn.

Þar á eftir komu dönsku framherjarnir Patrick Pedersen hjá Val og Thomas Mikkelsen hjá Breiðabliki.

Í sætum fjög til sjö sitja svo þrír Íslendingar sem allir hófu tímabilið hér á landi en nú er búið að selja þá alla til erlendra félaga. Efstu Íslendingarnir í baráttunni um gull, silfur og bronsskóinn því allir farnir úr landi.

Tryggvi Hrafn Haraldsson sem hefur skorað 12 mörk fyrir ÍA hefur skrifað undir hjá Lilleström í Noregi, hann gerði stuttan samning við norska liðið eftir gott gengi á Akranesi.

Óttar Magnús Karlsson sem skoraði níu mörk fyrir Víking Reykjavík var seldur til Venezia á Ítalíu en liðið leikur þar í næst efstu deild.

Valdimar Þór Ingimundarson hafði skorað átta mörk fyrir Fylki í deildinni í sumar áður en hann var seldur til Strømsgodset í Noregi.

Í gær var svo Stefán Teitur Þórðarson seldur frá ÍA til Silkeborg í Danmörku en Stefán hafði laumað inn átta mörkum fyrir ÍA.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Tveir leikmenn báðu um að taka ekki vítaspyrnu í gær

Tveir leikmenn báðu um að taka ekki vítaspyrnu í gær
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Leikmaður Arsenal ákærður – Varðhundur hans á að hafa bitið nuddarann í háls og hendi

Leikmaður Arsenal ákærður – Varðhundur hans á að hafa bitið nuddarann í háls og hendi
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Er þetta maðurinn sem á að fylla skarð Mo Salah í sumar?

Er þetta maðurinn sem á að fylla skarð Mo Salah í sumar?
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Ronaldo vinnur skaðabótamál gegn Juventus – Fær 1,5 milljarð plús vexti

Ronaldo vinnur skaðabótamál gegn Juventus – Fær 1,5 milljarð plús vexti
433Sport
Í gær

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls