Leiknir komst upp í efstu deild karla í gær eftir að KSÍ ákvað að blása öll Íslandsmót af vegna kórónuveirunnar. Reglugerð sambandsins gaf KSÍ leyfi til að blása mótin af og krýna meistara og senda lið upp og niður um deildir þó ekki væri búið að ljúka mótinu.
Leiknir var í öðru sæti deildarinnar og fór upp á markatölu. Ekki var hægt að halda Íslandsmótinu áfram vegna COVID-19 veirunnar og regluverks sem ríkisstjórn Íslands hefur sett á vegna hennar
Covid-19 veiran og sóttvarnareglur voru ekki ofarlega í huga Leiknismanna í gærkvöldi þegar þeir fengu tíðindin um að liðið væri í annað sinn í sögu félagsins komið upp í efstu deild. Kolbeinn Tumi Daðason blaðamaður á Vísir.is vakti athygli á málinu.
Valur gerði slíkt hið sama þegar liðið varð Íslandsmeistari í gær þegar stjórn KSÍ gafst upp í baráttu sinni við veiruna og þær takmarkanir sem gilda. Hefur félagið beðist afsökunar á hegðun sinni.
Reglur um samkomutakmarkanir mölbrotnar á Hlíðarenda í gær – Sjáðu myndskeiðið
Þannig birtu leikmenn félagsins myndir og myndbönd á samfélagsmiðlum en fleiri en tuttugu voru á svæðinu og þá gleymdist ítrekað að virða tveggja metra regluna. Málið hefur vakið athygli. „Tveggja metra reglan er tekin alla leið í Breiðholtinu. Reyndar tóku þeir fjögurra metra reglu King Mæk alvarlega líka,“ skrifar Kristján Óli Sigurðsson sérfræðingur Dr. Football um málið.
Tveggja metra reglan er tekin alla leið í Breiðholtinu. Reyndar tóku þeir fjögurra metra reglu King Mæk alvarlega líka. pic.twitter.com/PkOvNW0aGT
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) October 30, 2020
433.is hefur svo fengið myndband sem leikmaður Leiknis birti úr gleðskapnum en þar flæddi kampavínið yfir mannskapinn, það má sjá hér að neðan.