Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem varamaður á 72. mínútu þegar Millwall vann 0-2 útisigur á Preston North End í ensku 1. deildinni í kvöld. Leikið var á Deepdale vellinum í Preston.
Kenneth Zohore kom Millwall yfir með marki á 54. mínútu.
Á 84. mínútu tvöfaldaði Jed Wallace síðan forystu Millwall með marki úr vítaspyrnu.
Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum. Millwall hefur farið vel af stað í deildinni, liðið er í 3. sæti með 15 stig eftir 8 leiki.
Preston North End 0 – 2 Millwall
0-1 Kenneth Zohore (’54)
0-2 Jed Wallace (’84)