Virgil Van Dijk, leikmaður Liverpool, þarf að fara í aðgerð á hné vegna meiðsla sem hann hlaut í leik gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í gær. Þetta staðfestir Liverpool á heimasíðu sinni.
Van Dijk skaddaði liðbönd í hné eftir tæklingu frá Jordan Pickford, markverði Everton.
Ekki er ljóst á þessari stundu hversu lengi Van Dijk verður frá en það gæti verið töluvert langur tími.
Virgil van Dijk will undergo surgery on the knee injury sustained during Saturday’s 2-2 draw at @Everton.
Following surgery, Virgil will begin a rehabilitation programme to enable him to reach full fitness as soon as possible.
You’ll come back stronger, @VirgilvDijk 💪
— Liverpool FC (@LFC) October 18, 2020