Aron Jóhannsson var í byrjunarliði Hammarby og skoraði annað mark liðsins í 4-2 sigri á Mjallby í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Hammarby komst yfir með marki á 3. mínútu. Aron bætti við öðru marki liðsins á 5. mínútu.
Hammarby komst í stöðuna 3-0 áður en Mjallby minnkaði muninn á 25. mínútu.
Tim Soderstrom kom Hammarby síðan í stöðuna 4-1. Á 69. mínútu skoraði David Batanero fyrir Mjallby en nær komust gestirnir ekki. Lokatölur 4-2 sigur Hammarby.
Hammarby er eftir leikinn í 5. sæti deildarinnar með 36 stig. Mark Arons má sjá hér fyrir neðan.
Here is the goal from Aron Johannsson. Poor defending but Icelandic-American finishes with ease pic.twitter.com/1xeee0q6Sb
— Brian Sciaretta (@BrianSciaretta) October 18, 2020