A.C. Milan vann 1-2 sigur á Inter Milan í grannaslag dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni. Zlatan Ibrahimovic skoraði bæði mörk A.C. Milan.
A.C. Milan fékk vítaspyrnu á 12. mínútu. Zlatan tók spyrnuna, Handanovic í marki Inter varði frá honum en Zlatan náði frákastinu og kom boltanum í netið.
Fjórum mínútum síðar var Zlatan aftur á ferðinni þegar hann skoraði annað mark A.C. Milan.
Romelu Lukaku minnkaði muninn fyrir Inter með marki á 28. mínútu.
Fleiri mörk voru þó ekki skoruð í leiknum. A.C. Milan hafði betur í slagnum um Mílanó.
A.C. Milan er eftir leikinn í 1. sæti deildarinnar með 12 stig. Inter Milan er í 6. sæti með 7 stig.
Inter Milan 1 – 2 A.C. Milan
0-1 Zlatan Ibrahimovic (’12)
0-2 Zlatan Ibrahimovic (’16)
1-2 Romelu Lukaku (’28)