fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
433Sport

Fullyrt að Þorgrímur hafi brotið sóttvarnarreglur með faðmlagi á Laugardalsvelli

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 15. október 2020 07:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fullyrt er á forsíðu Fréttablaðsins í dag að Þorgrímur Þráinsson hafi brotið sóttvarnarreglur UEFA þegar hann gekk inn á leikvöllinn þegar Ísland vann sigur á Rúmeníu í umspili um laust sæti á EM í síðustu viku.

Þar er vitnað í reglur UEFA og sagt frá því að Þorgrímur hafi ekki verið á skýrslu í leiknum og því hafi honum ekki verið heimilt að fara inn á leikvöllinn að leik loknum. Nokkrum dögum eftir að Þorgrímur hafði brotið þessar reglur greindist hann með COVID-19 veiruna.

„Samkvæmt reglum UEFA og íslenskum reglum sem KSÍ vinnur eftir er starfsmönnum landsliðsins og leikmönnum ekki heimilt að knúsast og faðmast eftir leiki,“ segir í frétt sem Benedikt Bóas Hinriksson skrifar og birtist á forsíðu Fréttablaðsins í dag.

Með fréttinni er birt mynd af Þorgrími að knúsa Aron Einar Gunnarsson fyrirliða liðsins eftir að Ísland tryggði sér sæti í úrslitaleik um laust sæti á Evrópumótinu.  „Þorgrímur braut því reglur UEFA með því að arka inn á völlinn og knúsa þar leikmenn, grímulaus,“ skrifar Benedikt Bóas.

Leikurinn við Rúmeníu fór fram á fimmtudag en Þorgrímur greindist með veiruna snemma á þriðjudag eftir að hafa farið í skimun á mánudag. Sökum þess var allt starfslið Íslands í sóttkví þegar Ísland tapaði gegn Belgíu á heimavelli í gær.

Forsíða Fréttablaðsins í dag.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Besta deild kvenna fer af stað með látum á sunnudag

Besta deild kvenna fer af stað með látum á sunnudag
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Þetta stendur á veggnum þegar leikmenn City fara á æfingar

Þetta stendur á veggnum þegar leikmenn City fara á æfingar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Pétur Theódór snýr aftur heim til Gróttu eftir erfið meiðsli

Pétur Theódór snýr aftur heim til Gróttu eftir erfið meiðsli
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Hetja Bayern sökuð um að gera grín að haltrandi leikmanni Arsenal

Hetja Bayern sökuð um að gera grín að haltrandi leikmanni Arsenal
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ríkharð segir þetta ástæðu þess að KSÍ hefur ekki ráðið framkvæmarstjóra – „Hún er byrjuð í annarri vinnu og þiggur laun þar“

Ríkharð segir þetta ástæðu þess að KSÍ hefur ekki ráðið framkvæmarstjóra – „Hún er byrjuð í annarri vinnu og þiggur laun þar“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta
433Sport
Í gær

Norski áhrifavaldurinn nú komin með athyglisverðan titil – Sjáðu nýjustu myndir hennar

Norski áhrifavaldurinn nú komin með athyglisverðan titil – Sjáðu nýjustu myndir hennar