fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Öllu hafnað á neyðarfundi

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 14. október 2020 14:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Öllum þeim breytingum sem Liverpool með hjálp Manchester United lagði til á enskum fótbolta hefur verið hafnað. Enska úrvalsdieldin hélt neyðarfund í dag eftir að tillögurnar sem Liverpool steig fyrst fram með rötuðu í ensk blöð.

Lagt var til að fækka liðum í efstu deild England en á sama tíma átti að styðja betur fjárhagslega við félög í neðri deildum.

Félög í neðri deildum hafa flest öll stutt þetta framtak Liverpool og Manchester United en nú stefnir í að ekkert verði úr þessu.

Breytingarnar sem lagðar voru til.

Neðri deildir fái 250 milljónir punda vegna tekjutaps – Dregið verði af þeim á næstu árum í gegnum sjónvarpssamninga

Níu félög sem lengst hafa verið í ensku úrvalsdeildinni fái sérstaka stöðu – Ef sex þeirra eru á sama máli er hægt að gera reglugerðarbreytinga

Enska sambandið fái 100 milljónir punda til að aðstoða neðri deildir, kvennafóbolta og grasrótina.

8,5 prósent af hagnaði liða í úrvalsdeildinni fari í góð málefni.

25 prósent af hagnaði ensku úrvalsdeildarinnar og neðri deilda fari til liða í neðri deildum.

Sex prósent af hagnaði ensku úrvalsdeildarinnar fari í að byggja upp heimavelli liða í neðri deildum.

Nýjar reglur um sjónvarpsréttinn bæði á Englandi út og út um allan heim.

Deildarbikarinn og Samfélagsskjöldurinn hætti.

24 lið verði í Chamionship, League One og League Two. Atvinnumannafélögin verða því 90 en ekki 92 eins og í dag.

Úrvalsdeild kvenna verði sér eining.

Tvö lið falli úr ensku úrvalsdeildinni á hverju ári og tvö komi upp úr Championship deildinni. 16 sætið í úrvalsdeildinni fer svo í umspil um sæti við þriðja, fjórða og fimmta sæti í Championship deildinni um sæti í úrvalsdeildinni.

Financial Fair Play reglur UEFA verði notaðar og að bókhald liða verði opið fyrir öll félög í deildinni.

Miðar á útileiki kosti 20 pund.

Að úrvalsdeildin fari af stað seint í ágúst til að gefa meiri möguleika á æfingaleikjum, öll félög þurfa á fimm ára fresti að taka þátt í sumardeild úrvalsdeildarinnar.

Miklar breytingar á því hvernig má lána leikmenn, sem dæmi mættu fjórir leikmenn fara á láni frá einu liði í annað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sjáðu umræðurnar sem sköpuðust hér á landi í kvöld – „Greindarskerti maður“

Sjáðu umræðurnar sem sköpuðust hér á landi í kvöld – „Greindarskerti maður“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Zidane hvattur til að taka við United

Zidane hvattur til að taka við United
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Erling Haaland áfram meiddur

Erling Haaland áfram meiddur
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Væntanlegur stjóri Liverpool er harðhaus – Gerði Simeone trylltan en óttaðist ekkert

Væntanlegur stjóri Liverpool er harðhaus – Gerði Simeone trylltan en óttaðist ekkert