Knattspyrnudeild KR og Rúnar Kristinsson hafa skrifað undir nýjan samning sem tryggir KR starfskrafta Rúnars næstu þrjú keppnistímabil.
„Sem fyrr er mikil ánægja með störf Rúnars fyrir félagið undanfarin ár og fögnum við KR ingar því áframhaldandi samstarfi við hann,“ segir á vef KR.
Rúnar er í annað sinn að stýra KR en eftir Íslandsmeistaratitil í fyrra hefur gengi sumarsins verið brösugt.
Rúnar hefur unnið fjölda titla sem þjálfari með KR:
Íslandsmeistari: 2011,2013 og 2019.
Bikarmeistari: 2011, 2012 og 2014.