Arnór Ingvi Traustason kom inn á af bekknum á 77.mínútu þegar lið hans Malmö laut í lægra haldi fyrir Granada í Evrópudeildinni.
Darwin Machís kom Granada yfir með marki á 30. mínútu. Jo Inge Berget jafnaði fyrir Malmö undir lok fyrri hálfleiks.
Granada komst aftur yfir með marki frá Antonio Puertas á 58. mínútu. Yangel Herrera innsiglaði sigur Granada með marki á 85. mínútu.
Malmö FF 1 – 3 Granada
0-1 Darwin Machís (30′)
1-1 Jo Inge Berget (45′)
1-2 Antonio Puertas (58′)
1-3 Yangel Herrera (85′)