West Ham hefur staðfest komu miðjumannsins Tomas Soucek frá Slavia Prag.
Soucek er 24 ára gamall tékknenskur landsliðsmaður en hann átti mjög gott tímabil í heimalandinu.
West Ham fékk leikmanninn á láni út tímabilið en getur svo keypt hann endanlega í sumar.
Soucek getur leyst fjölmörg hlutverk á miðjunni og gæti reynst West Ham mikilvægur í komandi baráttu.
Hann á að baki 25 landsleiki fyrir og Tékkland og var fyrirliði Slavia.