fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
433Sport

Margir hissa á laununum sem Bruno Fernandes fær hjá United: Minna en flestir

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 29. janúar 2020 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmargir fréttamenn greina frá því að samkomulag sé undirritað er varðar kaup Manchester United á Bruno Fernandes miðjumanni Sporting Lisbon.

Fréttir bárust í gærkvöldi að samkomulag væri nánast í höfn en félögin hafa nú klárað allt og er Bruno Fernandes á leið í flug til Manchester, búist er við að hann fari i læknisskoðun í kvöld eða í fyrramálið.

United samdi um kaupverðið við Sporting Lisbon í gær og greiðir félagið 46,6 milljónir punda til að byrja. Líklega hækkar sú tala um 8,5 milljónir punda en einnig er klásúla um 12,7 milljónir punda ef United vinnur stóra titla, eins og Meistaradeildina.

Guardian segir frá því að Fernandes muni þéna 70 þúsund pund á viku, rúmar 11 milljónir íslenskra króna. Margir eru hissa á því enda launin ekki svo há í samanburði við aðra leikmenn félagsins, Jesse Lingard, Fred, Nemanja Matic, Phil Jones og Marcos Rojo þéna talsvert meira sem dæmi. Fernandes verður á meðal þeirra sem fær hvað minnst borgað í aðalliði United.

Hjá United þéna Paul Pogba og David de Gea nálægt 300 þúsund pundum á viku eða um 48 milljónir íslenskra króna. Alexis Sanchez er svo sagður vera með 500 þúsund pund á viku, en hann er á láni hjá Inter.

Að auki fær Fernandes bónusgreiðslur fyrir sigra og árangur United.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Endar Martial hjá liði í London?

Endar Martial hjá liði í London?
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Netverjar hafa tekið eftir atviki sem sást ekki í sjónvarpi – Hafði líklega mikil áhrif á úrslit gærkvöldsins

Netverjar hafa tekið eftir atviki sem sást ekki í sjónvarpi – Hafði líklega mikil áhrif á úrslit gærkvöldsins
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Telur að Salah sé fyrir löngu búinn að semja við annað lið en Liverpool

Telur að Salah sé fyrir löngu búinn að semja við annað lið en Liverpool
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum
Leikmenn Arsenal í rusli
433Sport
Í gær

Karl-remba KR-inga í Morgunblaðinu vekur nokkra athygli – Segja aðra borga betur

Karl-remba KR-inga í Morgunblaðinu vekur nokkra athygli – Segja aðra borga betur
433Sport
Í gær

Þrátt fyrir framhjáhald og vesen mætti Walker á fæðingardeildina og hélt í hönd eiginkonunnar

Þrátt fyrir framhjáhald og vesen mætti Walker á fæðingardeildina og hélt í hönd eiginkonunnar