Manchester United hefur staðfest það að félagið sé búið að ná samkomulagi við Sporting Lisbon.
Um er að ræða samkomulag vegna miðjumannsins Bruno Fernandes sem er á leið til Manchester.
Fernandes hefur verið orðaður við United allan janúar og eru skiptin nú að ganga í gegn.
Fernandes hefur skorað 14 mörk í 28 leikjum á tímabilinu og er einnig landsliðsmaður Portúgals.
United staðfesti samkomulag við Sporting en á eftir að ná samningum við leikmanninn sjálfan.