West Ham 0-2 Liverpool
0-1 Mo Salah(víti, 35′)
0-2 Alex Oxlade-Chamberlain(52′)
Liverpool er komið með 19 stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir leik við West Ham í kvöld.
West Ham reyndist engin fyrirstaða fyrir Liverpool sem vann 2-0 sigur á útivelli.
Þeir Mohamed Salah og Alex Oxlade-Chamberlain gerðu mörk Liverpool en það fyrra var úr vítaspyrnu.
Liverpool er með 70 stig á toppnum eftir 24 umferðir og er Manchester City í því öðru með 51.