Fjölmargir fréttamenn greina frá því að samkomulag sé undirritað er varðar kaup Manchester United á Bruno Fernandes miðjumanni Sporting Lisbon.
Fréttir bárust í gærkvöldi að samkomulag væri nánast í höfn en félögin hafa nú klárað allt og er Bruno Fernandes á leið í flug til Manchester, búist er við að hann fari i læknisskoðun í kvöld eða í fyrramálið.
United samdi um kaupverðið við Sporting Lisbon í gær og greiðir félagið 46,6 milljónir punda til að byrja. Líklega hækkar sú tala um 8,5 milljónir punda en einnig er klásúla um 12,7 milljónir punda ef United vinnur stóra titla, eins og Meistaradeildina.
Manchester Evening News hefur stillt upp nokkrum útgáfum af sterkasta byrjunarliði United með komu Bruno Fernandes.