Chelsea er komðið í viðræður við Dries Mertens, framherja Napoli um að fá hann til félagsins. Gianluca Di Marzio segir frá.
Mertens er samningslaus í sumar og hefur Napoli ekki tekist að semja við hann aftur.
Chelsea vill kaupa Mertens áður en félagaskiptaglugginn lokar á föstudag, Frank Lampard vill bæta við sóknarmanni.
Olivier Giroud er að reyna að fara og gæti endað hjá Tottenham og því vill Lampard fá inn sóknarmann.
Mertens er landsliðsmaður Belgíu og hefur hann raðað inn mörkum fyrir Napoli.