Chelsea hefur sent fyrirspurn til Napoli vegna sóknarmannsins öfluga Dries Mertens.
Frá þessu er greint í kvöld en Chelsea vill fá framherja til að veita Tammy Abraham keppni.
Edinson Cavani var einnig á óskalista Chelsea en það er talið að hann sé á förum til atletico Madrid.
Mertens verður samningslaus í lok tímabils og er möguleiki á að Napoli þurfi að selja.
Belginn er þó ekkert unglamb en hann er 32 ára gamall og má ræða við annað félag í þessum mánuði.