Það er stórleikur á dagskrá í enska deildarbikarnum í kvöld en leikið er í undanúrslitunum.
Manchester City fær þá granna sína í Manchester United í heimsókn en um er að ræða seinni leik liðanna.
Fyrri leiknum lauk með 3-1 sigri City sem er í frábærri stöðu fyrir leik kvöldsins. Sigurliðið mætir Aston Villa í úrslitum.
Hér má sjá byrjunarlið kvöldsins.
Man City: Bravo, Walker, Rodri, Otamendi, Cancelo, Gundogan, Mahrez, De Bruyne, Bernardo, Sterling, Aguero.
Man Utd: De Gea, Wan-Bissaka, Lindelöf, Maguire, Shaw, Williams, Matic, Fred, Lingard, Martial, Greenwood.