fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433Sport

Bruno Fernandes á leið í flug til Manchester

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 29. janúar 2020 09:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bruno Fernandes er væntanlegur til Manchester í dag til að ganga frá félagaskiptum sínum til Manchester United.

Fernandes fer í læknisskoðun á æfingasvæði United áður en hann skrifar undir fjögurra og hálfs árs samning.

United samdi um kaupverðið við Sporting Lisbon í gær og greiðir félagið 46,6 milljónir punda til að byrja. Líklega hækkar sú tala um 8,5 milljónir punda en einnig er klásúla um 12,7 milljónir punda ef United vinnur stóra titla, eins og Meistaradeildina.

Fernandes er 25 ára gamall sóknarsinnaður miðjumaður sem hefur raðað inn mörkum i Portúgal.

Miðsvæði United er þunnskipað og hefur United síðustu vikur reynt að ná saman við Sporting, það tókst loks í gær.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Ivan Toney sagður gera kröfu um að þéna meira en Bruno

Ivan Toney sagður gera kröfu um að þéna meira en Bruno
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Miklar breytingar á enska bikarnum um næstu helgi – Ekki spilað í deildinni um sömu helgi

Miklar breytingar á enska bikarnum um næstu helgi – Ekki spilað í deildinni um sömu helgi
433Sport
Í gær

Arsenal skapaði sér lítið og er úr leik í Meistaradeildinni

Arsenal skapaði sér lítið og er úr leik í Meistaradeildinni
433Sport
Í gær

Segir Emil með troðfullt rassgat af peningum – „Beðið eftir því að síminn pingi að Stjarnan sé búinn að millifæra 1,2 milljónir“

Segir Emil með troðfullt rassgat af peningum – „Beðið eftir því að síminn pingi að Stjarnan sé búinn að millifæra 1,2 milljónir“