Wayne Rooney skoraði sitt fyrsta mark fyrir Derby County í kvöld í leik gegn Luton.
Rooney sneri aftur til Englands í janúar en hann hafði leikið með DC United í Bandaríkjunum.
Enska goðsögnin skoraði fyrsta mark Derby gegn Luton en leikurinn tapaðist að lokum, 3-2.
Rooney nældi sér einnig í gult spjald á 88. mínútu og það var alls ekki hans fyrsta á ferlinum.
Hér má sjá markið.
Buzzing for Rooney getting his first goal for Derby! Some deflection on it though #LTFCvDCFC #DCFC #rams pic.twitter.com/0yCTsE3Spj
— Cam Melling (@RomseyCam) 28 January 2020