Georginio Wijnaldum, segist ekki vera að flýta sér að skrifa undir nýjan samning við Liverpool. Hollenski miðjumaðurinn gæti farið frá Liverpool í sumar.
Wijnaldum er 29 ára gamall og hefur hann ekki náð samkomulagi við Liverpool um nýjan samning.
Wijnaldum á tæpa 18 mánuði eftir af samningi sínum en ef ekki tekst að semja fyrir sumarið, gæti Liverpool selt hann til að missa hann ekki frítt.
,,Hvað vil ég? Það er mjög erfitt að segja,“ sagði Wijnaldum.
,,Það fer eftir því hvað félagið vill, og hvernig staðan er á þeim tíma. Anfield er eins og heimili mitt.“