John Barnes, goðsögn Liverpool, segir að liðið þurfi ekki á leikmönnum að halda í janúar.
Barnes er viss um það að hópur Liverpool sé nógu góður til þess að berjast um þá titla sem eru í boði.
Hann segir þó að ef Liverpool gæti fengið Lionel Messi frá Barcelona að það myndi styrkja hópinn.
,,Þeir þurfa engan. Ef þeir geta fengið Messi þá væri það frábært en þeir eru með góðan hóp,“ sagði Barnes.
,,Það er enginn sem við gætum samið við sem myndi bæta liðið, við erum með nógu marga leikmenn og ég er ánægður.“