Emre Can, miðjumaður Juventus er eftirsóttur og vill fara. Þýski miðjumaðurinn hefur ekki náð að festa rætur hjá Juventus.
Can hefur ekki náð að negla sæti í byrjunarliði Juventus og hefur lítið spilað undir stjórn Maurizio Sarri. Can fór frítt frá Liverpool árið 2018 til Juventus.
Bild í Þýskalandi segir að Emre Can sé eftirsóttur en Manchester United, Arsenal og Tottenham hafa öll áhuga. Þá vilja þýsku félögin FC Bayern og Borussia Dortmund líka fá hann.
Juventus er tilbúið að selja hann fyrir 25 milljónir punda og Can gæti farið áður en glugginn lokar á föstudag.
Vandamálið er að Can þénar 260 þúsund pund á viku hjá Juventus en sem dæmi vill Dortmund „aðeins“ borga honum 160 þúsund pund á viku, frábær laun en lækkun um 16 milljónir íslenskra króna á viku.