Florentin Pogba hefur síðustu daga æft með Charlton sem leikur í næst efstu deild Englands. Florentin er þekktastur fyrir að vera bróðir Paul Pogba.
Atlanta í MLS deildinni ákvað að losa sig við Florentin eftir síðustu leiktíð.
Pogba hefur æft með U23 ára liði Charlton en hann er miðvörður sem Charlton gæti samið við.
Pogba lék áður með St Etienne í Frakklandi og í Tyrklandi, áður en hann fór til Bandaríkjanna.
Pogba hefur spilað 21 landsleik fyrir Gíneu en hann vonast eftir samningi í London.