Liverpool er búið að samþykkja það að hleypa Xherdan Shaqiri burt en hann fer þá næsta sumar.
Frá þessu greina enskir miðlar en Liverpool hefur neitað að lána leikmanninn í þessum glugga.
Roma og Sevilla reyndu að fá Shaqiri lánaðan fyrr í janúar en fengu skýrt nei frá Liverpool.
Enska liðið er þó tilbúið að selja Shaqiri fyrir 25 milljónir punda í sumar eftir komu Takumi Minamino frá Salzburg.
Shaqiri hefur lítið sem ekkert spilað á tímabilinu og hefur komið við sögu í aðeins 10 leikjum.