Matteo Darmian, leikmaður Parma, er að skipta um félag á ný eftir að hafa samið við félagið í fyrra.
Darmian kom til Parma frá Manchester United sumarið 2019 og hefur spilað 15 deildarleiki á tímabilinu.
Inter Milan er nú að tryggja sér þjónustu leikmannsins sem á að baki 36 landsleiki fyrir Ítala.
Darmian er þrítugur bakvörður en hann lék með United frá 2015 til 2019.
Hann var áður hjá Torino og spilaði þar við góðan orðstír í fjögur ár.