Það eru engar líkur á því að Ole Gunnar Solskjær verði rekinn frá Manchester United næsta sumar.
Það er enska götublaðið Sun sem fullyrðir þessa fréttir en Solskjær er oft sagður vera valtur í sessi.
Samkvæmt Sun þá mun stjórn United ekki reka Solskjær jafnvel þó að félagið komist ekki í Evrópukeppni.
United situr þessa stundina í fimmta sæti deildarinnar en þar er þéttur pakki og verður hart barist um efstu sætin.
Solskjær er ekki vinsæll hjá öllum stuðningsmönnum United en hann tók við af Jose Mourinho í lok 2018.