Quique Setien, stjóri Barcelona, staðfesti það í dag að félagið væri að leita að framherja.
Setien er nýr stjóri Barcelona en hann tók við af Ernesto Valverde á dögunum og vann fyrsta leik sinn 1-0.
Luis Suarez verður frá keppni út tímabilið og vantar Barcelona upp á breiddina í sókninni.
Orðrómur er um að Barcelona ætli að reyna að fá Pierre-Emerick Aubameyang á láni frá Arsenal.
Barcelona er enn á lífi í spænska bikarnum og Meistaradeildinni og þarf því möguleika í sókninni.