Enska knattspyrnusambandið hefur ákært lið Manchester United eftir atvik sem kom upp um helgina.
United spilaði við Liverpool í ensku úrvalsdeildinni en margir misstu sig aðeins hjá gestunum í fyrri hálfleik.
Á 26. mínútu virtist Liverpool hafa komist í 2-0 áður en það mark var dæmt af vegna brots innan teigs.
Leikmenn United voru reiðir í fyrstu eftir að markið var dæmt gilt og létu dómarann Craig Pawson heyra það.
Knattspyrnusambandið hefur í kjölfarið ákært United fyrir að ná ekki að hafa stjórn á eigin leikmönnum.