Mikel Arteta, stjóri Arsenal, íhugaði að taka framherjann Gabriel Martinelli af velli í kvöld.
Martinelli skoraði fyrra mark Arsenal í 2-2 jafntefli við Chelsea en liðið var manni færri frá 26. mínútu.
Arteta ætlaði þá um stund að taka Martinelli útaf en hætti við að lokum og það borgaði sig.
,,Ég er stoltur af leikmönnunum og andanum sem þeir sýndu sem og karakter. Þeir börðust og sýndu leiðtogahæfileika,“ sagði Arteta.
,,Ég íhugaði að skipta Martinelli af velli en ég vildi ekki senda liðinu þau skilaboð.“