Michael Brown, fyrrum leikmaður Manchester City, telur að Pep Guardiola gæti verið á förum frá félaginu.
Gengi City á tímabilinu hefur ekki verið eins og gott og síðustu tvö ár en útlit er fyrir að liðið nái ekki að verja titilinn þriðja árið í röð.
Brown hefur fylgst vel með City á tímabilinu og býst við að Guardiola muni leita annað eftir leiktíðina.
,,Persónulega þá held ég að hann yfirgefi félagið í lok tímabils,“ sagði Brown.
,,Miðað við líkamstjáninguna undanfarið eftir árangurinn, hann er búinn að ná markmiðunum og gæti forðað sér burt.“