Juventus er nú með fjögurra stiga forskot á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar eftir leik við Parma í kvöld.
Það var Cristiano Ronaldo sem sá um að tryggja Juve sigur en hann gerði bæði mörk liðsins í 2-1 sigri.
Parma tókst að jafna metin snemma í seinni hálfleik en það mark dugði aðeins í þrjár mínútur.
Juventus er nú með 51 stig á toppnum, fjórum stigum á undan Inter Milan sem gerði jafntefli við Lecce í dag.