Laurent Koscielny, leikmaður Bordeaux, hefur útskýrt af hverju hann fór frá Arsenal í sumar.
Frakkinn gerði marga reiða er hann fór óvænt frá Arsenal en hann þurfti á nýrri áskorun að halda.
,,Ég skil það að stuðningsmenn Arsenal bjuggust ekki við að ég væri á förum,“ sagði Koscielny.
,,Það bjóst enginn við þessu. Þetta var mjög einfalt, ég var ekki eins ánægður og ég var fyrsta daginn sem ég skrifaði undir.“
,,Fjölskyldan og ég þurftum að fara til Frakklands og fá nýja áskorun.“