Romelu Lukaku, leikmaður Inter Milan, hefur byrjað feril sinn á Ítalíu virkilega vel.
Lukaku gekk í raðir Inter frá Manchester United og hefur skorað 18 mörk í 25 leikjum.
Liðsfélagar Lukaku gerðu grín að honum í gær eftir mynd sem hann birti á Instagram af glænýju rúmi.
Belginn er fluttur í nýja íbúð á Ítalíu og ákvað að kaupa eitt stærsta rúm sem í raun sést hefur.
,,Er þetta fyrir 15 manns?“ skrifaði Andrea Ranocchia við mynd Lukaku en hann virðist vera mjög lítill á myndinni miðað við rúmið.
Eins og sjá má er rúmið risastórt!