Jose Mourinho, stjóri Tottenham fær veglegan bónus takist honum að koma Tottenham í Meistaradeild Evrópu.
Tottenham er ekki líklegt til þess eins og staðan er í dag en hlutirnir eru fljótir að breytast.
Ensk blöð segja frá því í dag að Mourinho fái 2 milljónir punda í bónus, komist Tottenham í Meistaradeildina.
Tottenham er 9 stigum frá Meistaradeildarsæti og hefur liðið ekki spilað vel síðustu vikur.
Mourinho tók við Tottenham í vetur eftir að Mauricio Pochettino var rekinn úr starfi.