Virtur læknir telur að Harry Kane, framherji Tottenham og Englands verði ekki leikfær á EM í sumar. Hann segir það ekki gáfulegt að flýta sér á völlinn, eftir svona meiðsli.
Kane reif vöðva aftan í læri og þurfti að fara í aðgerð, bjartsýnir menn vona að Kane verði klár í apríl.
Læknirinn sem enskt götublað ræddi við telur að það sé ekki skynsamlegt. ,,Ég myndi telja að hann verði frá í sex mánuði. Það eru mismunandi skoðanir á þessu, þetta er ekki meiðsli sem koma oft fyrir,“ sagði læknirinn.
,,Ef aðgerðin gekk vel, þá gerir hann ekkert fyrstu sex vikurnar. Frá viku 6-12 er hann bara að gera styrktaræfingar. Eftir þrjá mánuði er svo hægt að byrja endurhæfingu, sem fer af stað eftir venjuleg vöðvameiðsli.“
Læknirinn telur skynsamlegast fyrir Tottenham og Kane að framherjinn sleppi EM og einbeit sér að því að vera klár þegar undirbúningstímabil félagsins hefst.