Manchester United og Sporting Lisbon eru nú að deila um kaupverðið á Bruno Fernandes, miðjumanni félagsins. United vill kaupa Fernandes og Sporting er tilbúið að selja. Talið er að Fernandes sé á leið til United í þessum glugga vegna fjárhagsvandræða Sporting Lisbon.
Ensk blöð segja að United sé búið að bjóða 50 milljónir punda, og 10 milljónir punda að auki í bónusa. Það fer eftir frammistöðu liðsins og Fernandes, hversu mikið Sporting fær af því. Sporting vill hins vegar 64 milljónir punda strax, ekki neina bónusa en félögin deila um þessi mál núna.
Stuðningsmenn United vonast til þess að félaginu takist að klára kaupin, miðsvæði félagsins er þunnskipað og koma Bruno gæti hjálpað mikið.
Bruno er blóðheitur eins og sannaðist í vetur þegar hann var rekinn af velli gegn Boavista, hann sturlaðist af reiði. Hann sparkaði í tvær hurðir og ein af þeim skemmdist.
,,Mér er skítsama um þessa hurð, ég borga hana bara. Hoppið upp í rassgatið á ykkur,“ sagði Bruno þegar starfsfólk Boavista var að vara hann við.
Atvikið má sjá hér að neðan.
He’s an absolute sh*thouse ♥️
He’d fit in just fine! pic.twitter.com/zg5AvsV5oj
— 'Drawty “Fabrizio Di Marzio 🤪”’ (@DrawtyDevil) January 13, 2020