A landslið karla kom til Los Angeles í Bandaríkjunum á laugardag, þar sem liðið verður við æfingar næstu daga og leikur tvo vináttuleiki – fyrst gegn Kanada miðvikudaginn 15. janúar og síðan gegn El Salvador sunnudaginn 19. janúar.
Fyrsta æfingin fór fram á sunnudag, á æfingavelli við leikvang LA Galaxy, þar sem seinni vináttuleikur ferðarinnar fer fram. Allir leikmennirnir í hópnum tóku þátt í æfingunni.
Myndir af æfingunni eru hér að neðan.