West Ham vann þægilegan 4-0 sigur á Wolves í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Fyrir fram voru Úlfarnir taldir líklegri til sigurs.
Jarrod Bowen kom West Ham yfir á 17. mínútu. Hann var síðan aftur á ferðinni á 57. mínútu er hann tvöfaldaði forystu West Ham.
Raúl Jimenez varð síðan fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 66. mínútu.
Sebastian Haller innsiglaði 4-0 sigur West Ham með marki á 93. mínútu.
West Ham er eftir leikinn í 12. sæti deildarinnar með þrjú stig. Wolves eru í 16. sæti deildarinnar, einnig með þrjú stig
West Ham 4 – 0 Wolves
1-0 Jarrod Bowen (’17)
2-0 Jarrod Bowen (’57)
3-0 Raul Jimenez, sjálfsmark (’66)
4-0 Sebastian Haller (’93)