Íslendingar voru að spila víðs vegar um Norðurlöndin í dag.
Ragnar Sigurðsson var í hjarta varnarinnar hjá FC Kaupmannahöfn í 2-2 jafntefli við Vejle í dönsku úrvalsdeildinni. Ragnar spilaði allan leikinn fyrir FC Kaupmannahöfn sem er í 11. sæti með 1 stig eftir þrjá leiki.
Hjörtur Hermannsson var ónotaður varamaður hjá Bröndby í 2-1 sigri á Horsens í dönsku úrvalsdeildinni.
Ísak Bergmann Jóhannesson var á sínum stað í byrjunarliði Norrköping sem sigraði Djurgarden 1-2 í sænsku úrvalsdeildinni. Ísak lék allan leikinn fyrir Norrköping sem er í 2. sæti deildarinnar.
Axel Óskar Axelsson spilaði allan leikinn fyrir Viking í 1-2 sigri á Mjöndalen í norsku úrvalsdeildinni. Dagur Dan Þórhallsson var ónotaður varamaður hjá Mjöndalen.
Davíð Kristján Ólafsson spilaði allan leikinn fyrir Álasund í 1-2 tapi gegn Rosenborg í norsku úrvalsdeildinni.
Jón Guðni Fjóluson spilaði sinn fyrsta leik fyrir Brann er liðið gerði 1-1 jafntefli við Kristiansund í norsku úrvalsdeildinni.