Guðmundur Benediktsson sjónvarpsmaður hjá Stöð2 fer á kostum í nýrri auglýsingu fyrir Stöð2 Sport. Þar er verið að kynna veturinn.
Steindi Jr er þar að leikstýra Guðmundi sem missir sig í gleðinni þegar hann fer yfir alla þá viðburði sem verða á dagskrá.
Steindi reynir að stuða Guðmund aftur í gang en það gengur ekkert alltof vel svona til byrja með.
Sjón er sögu ríkari en auglýsinguna má sjá hér að neðan.